Kremkexkaka



⌑ Samstarf ⌑
Brownie uppskrift

Kremkex frá Frón er uppáhalds kex margra hér á þessu heimili. Það var því ekki sérlega flókið að segja stórt já við því samstarfi, hahaha! Það komu margar hugmyndir upp í hugann en við skulum byrja á þessari hér og vona ég eigi síðan eftir að gera fleiri fyrir ykkur í framtíðinni!

Kremkex í köku

Þessi kaka var brjálæðislega góð og best er hún að sjálfsögðu nýbökuð. Næstu daga laumaði ég reyndar sneið í örbylgjuofninn örskamma stund og þá varð hún aftur alveg eins og nýbökuð, nammi, namm!

Góð kaka uppskrift

Kremkexkaka

  • 150 g smjör við stofuhita
  • 140 g sykur
  • 50 g púðursykur
  • 2 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 200 g dökkt súkkulaði (bráðið)
  • 120 g hveiti
  • 2 msk. bökunarkakó
  • ¼ tsk. salt
  • 2 msk. volgt vatn
  • 50 g dökkir súkkulaðidropar + til skrauts
  • 50 g mjólkursúkkulaðidropar + til skrauts
  • 100 g hvítir súkkulaðidropar + til skrauts
  • 8-10 kremkex frá Frón í kökuna + til skrauts
  1. Hitið ofninn í 175°C og klæðið ferkantað kökuform/eldfast mót (um 20 x 20 cm) að innan með bökunarpappír.
  2. Þeytið saman smjör og báðar tegundir af sykri þar til létt.
  3. Bætið eggjunum saman við ásamt vanilludropum, þeytið og skafið niður á milli.
  4. Næst má setja bráðið súkkulaðið saman við og næst þurrefnin (hveiti, bökunarkakó og salt).
  5. Að lokum má bæta vatninu í skálina, skafa niður og hræra.
  6. Vefjið súkkulaðidropum saman við í lokin með sleikju og setjið helming deigsins í formið og sléttið úr.
  7. Raðið næst kremkexi með smá bili á milli yfir allt deigið og setjið síðan hinn helminginn af deiginu yfir það og sléttið aftur úr.
  8. Toppið með nokkrum bitum af kremkexi og súkkulaðidropum í öllum litum.
  9. Bakið í 35 mínútur og hafið álpappír yfir kökunni fyrstu 20 mínúturnar til að koma í veg fyrir að kexið og súkkulaðið á toppnum verði of dökkt.
  10. Kælið og skerið niður í bita.
Kremkex frá Frón í baksturinn

Kremkex er fullkomið eitt og sér en mikið sem það er gaman að blanda því í bakstur!

Brúnka með kremkexi

Mmmm…..svo góð!

Brownie kaka

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun