Indverskur kjúklingaréttur



⌑ Samstarf ⌑
indverskur réttur

Elsta dóttir mín er búin að biðja mig um að gera indverskan rétt allt of lengi svo nú hristi ég mig í gang og henti í einn ofur einfaldan og ljúffengan!

Fljótlegur kvöldmatur

Við elskum öll indverskan mat svo nú þarf að fara í frekari tilraunastarfsemi á þessu sviði. Mig hefur alltaf langað á námskeið í indverskri matargerð til að læra betur á öll kryddin og töfrana og það er klárlega eitthvað sem ég þarf að fara að koma að í dagskrá lífsins.

Indverskur kjúklingaréttur

Hér kemur hins vegar dásamlegur kjúklingaréttur sem var tilbúinn á 20 mínútum svo það er ekki lengur afsökun fyrir því að prófa ekki að skella í indverskt!

butter chicken á 20 mínútum

Indverskur kjúklingaréttur

Fyrir um 4 manns

Kjúklingaréttur

  • 1 laukur
  • 3 hvítlauksrif
  • 2 tsk. rifið engifer
  • 700 g Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri
  • 4 msk. Hunt‘s tómatmauk (paste)
  • 1 msk. Garam Masala
  • 1 tsk. paprikuduft
  • 1 tsk. cumin duft
  • 350 ml rjómi
  • Salt og pipar
  • Smjör og ólífuolía til steikingar
  1. Skerið kjúklinginn niður og leggið til hliðar.
  2. Saxið laukinn smátt og steikið við vægan hita upp úr olíu og smjöri, kryddið með salti og pipar.
  3. Rífið engifer og hvítlauk saman við í lokin og steikið áfram stutta stund.
  4. Næst má kjúklingurinn fara á pönnuna og hér má bæta við smá olíu og krydda aðeins með salti og pipar.
  5. Næst má bæta tómatmauki og öðrum kryddum saman við og steikja áfram.
  6. Hellið þá rjómanum á pönnuna og leyfið að malla í um 10 mínútur á meðan þið sjóðið grjón og hitið naan brauð.
  7. Gott er að rífa smá kóríander yfir í lokin en það er þó ekki nauðsynlegt.

Meðlæti

  • Tilda hrísgrjón (soðin)
  • Patak‘s naan brauð með smjöri
Rose poultry kjúklingalæri

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun