Súkkulaðibitakökur með karamellukeim



⌑ Samstarf ⌑
Jólasmákökur

Við ELSKUM súkkulaðibitakökur í öllum stærðum og gerðum og hugsa ég að við séum alls ekki ein um það!

Hvað á að baka fyrir jólin

Hér kemur ein klassísk þar sem ég var bæði að prófa að nota brætt smjör (í stað smjörs við stofuhita) og Milka Daim súkkulaði sem er eitt af okkar uppáhalds og útkoman var stórfengleg.

Góðar súkkulaðibitakökur

Súkkulaðibitakökur með karamellukeim

Um 20 stykki

  • 110 g smjör (brætt)
  • 70 g sykur
  • 100 g púðursykur
  • 1 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 120 g Milka Daim súkkulaði (saxað)
  • 100 g dökkir súkkulaðibitar
  1. Hrærið brætt smjör og báðar tegundir af sykri saman í  hrærivélinni með K-inu.
  2. Bætið eggi og vanilludropum saman við og hrærið áfram.
  3. Hrærið hveiti, matarsóda og salt saman í skál og setjið saman við í nokkrum skömmtum. Skafið niður á milli og hrærið létt.
  4. Að lokum má setja Milka Daim og dökka súkkulaðidropa saman við.
  5. Klæðið tvær bökunarplötur með bökunarpappír og mótið kúlur úr deiginu sem eru um 2 matskeiðar á stærð hver.
  6. Setjið bökunarplöturnar út eða inn í kæli (plastaðar) í um 2 klukkustundir og bakið síðan við 175°C í 12-15 mínútur eða þar til kantarnir fara að gyllast.
Milka Daim súkkulaði í jólabaksturinn

Þetta súkkulaði gerir sannarlega gott betra!

Súkkulaðibitakökur uppskrift

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun