Í gær, um miðjan nóvember, var 10 stiga hiti og milt veður. Ég hoppaði því aðeins úr jólagírnum og yfir í smá vorfíling og útbjó þennan rétt. Almáttugur minn hvað þetta var ferskt og gott og frábær tilbreyting frá haustmatnum sem ég er búin að vera með undanfarið!

Tígrisrækjur eru alveg svakalega góðar af grillinu!

Tígrisrækju Tostadas
Fyrir um 4 manns
- Um 700 g stór tígrisrækja frá Sælkerafiski (2 pakkar)
- 250 ml Caj P grillolía með hvítlauk
- Rauðkál ferskt
- 10 stk Tostadas skífur harðar eða litlar mjúkar tortilla kökur
- Guacamole (sjá uppskrift hér að neðan)
- Sýrður rjómi
- Kóríander
- Affrystið rækjurnar, skolið og þerrið.
- Hrærið þeim saman við grillolíu í skál, plastið og geymið í kæli í að minnsta kosti 2 klukkustundir.
- Áður en rækjurnar eru grillaðar má skera rauðkál smátt niður, útbúa Guacamole og taka til önnur hráefni.
- Raðið rækjunum upp á grillspjót og grillið við háan hita í um 3 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær verða bleikar á litinn, þá eru þær tilbúnar. Gott er að spreyja grillið fyrst með PAM matarolíuspreyi til að rækjurnar festist síður við og síðan má pensla þær 1 x á hvorri hlið með auka grillolíu á meðan þær eldast.
- Raðið síðan öllu saman á hverja Tostadas skífu, fyrst rauðkál, guacamole, síðan rækjur, næst sýrður rjómi og loks ferskur kóríander.
- Gott er að bera restina af guacamole fram með nachos flögum.
Guacamole uppskrift
- 3 stór þroskuð avókadó
- 1 box kirsuberjatómatar (250 g)
- 1 lítill rauðlaukur
- 2 msk. kóríander (saxað)
- 2 rifin hvítlauksrif
- ½ lime (safinn)
- Salt og pipar eftir smekk
- Stappið avókadó, skerið tómata smátt og saxið rauðlaukinn.
- Blandið næst öllu saman í skál með sleikju og kryddið eftir smekk.

Hvítlauks grillolían gerir þær enn betri og best er að marinera þær að minnsta kosti í tvær klukkustundir. Það mætti þessvegna vera yfir nótt en þá er gott að hafa í vel lokuðu íláti.

Ísköld Stella toppar þessa máltíð síðan auðvitað!

Mmmm…

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!