Hamborgarhryggur með appelsínu- og möndlugljáa



⌑ Samstarf ⌑
hvernig á að elda hamborgarhrygg

Hamborgarhryggur er á veisluborði margra landsmanna yfir hátíðirnar. Hann er algjör klassík en svo er gaman að prófa mismunandi gljáa og meðlæti með honum. Hér var ég að prófa appelsínukeim í gljáanum og möndluflögur yfir allan hrygginn og það kom ótrúlega vel út.

Uppskrift af hamborgarhrygg

Þessi var alveg fullkominn!

Hamborgarhryggur með appelsínu- og möndlugljáa

Fyrir um 6 manns

Hamborgarhryggur eldun

  • Um 3 kg Ali hamborgarhryggur
  • 1 l vatn
  • 180 ml appelsínusafi
  • 200 g púðursykur
  • 1 msk. dijon sinnep
  • 120 g hunang
  • 70 g möndluflögur
  1. Byrjið á því að útbúa gljáann með því að hita saman appelsínusafa, púðursykur, sinnep og hunang þar til sykurinn er uppleystur.
  2. Hellið 1 l af vatni í ofnskúffu neðst í ofninum og stillið hitann á 150°C.
  3. Setjið hamborgarhrygginn á ofngrind, penslið 1 x með gljáanum (geymið 3 msk. fyrir sósuna og síðan restina til að pensla á hrygginn á meðan á eldun stendur).
  4. Stingið kjöthitamæli inn í hann miðjan og komið grindinni fyrir í ofninum fyrir ofan skúffuna með vatninu. Penslið 1-2 x á hrygginn á meðan hann er í ofninum á þessum tíma. Ef þið eigið ekki kjöthitamæli er gott að miða eldunartíma við 45 mín til klukkustund á hvert kíló.
  5. Eldið hrygginn með þessum hætti þar til kjarnhiti sýnir um 55°C og hækkið þá hitann á ofninum í 200°C.
  6. Blandið möndluflögunum nú saman við restina af gljáanum, setjið yfir hrygginn og eldið þar til kjarnhiti sýnir 67°C og takið hrygginn þá út og hvílið í að minnsta kosti 15 mínútur áður en þið skerið í sneiðar.

Sveppasósa uppskrift

  • 250 g sveppir
  • 40 g smjör
  • 170 ml vatn
  • 500 ml rjómi
  • 2 msk. kjötkraftur
  • 3 msk. gljái
  • 50 ml rauðvín
  • Salt, pipar, hvítlauksduft og cheyenne pipar
  • Maizenamjöl
  1. Skerið sveppina niður og steikið upp úr smjöri og kryddið eftir smekk.
  2. Steikið þar til þeir mýkjast og bætið þá vatni, rjóma, krafti og gljáa á pönnuna, hitið að suðu og lækkið síðan vel niður hitann og leyfið sósunni að malla á meðan hryggurinn er í ofninum.
  3. Smakkið til og bætið krafti/kryddum við eftir smekk og í lokin má þykkja sósuna með Maizenamjöli og bæta rauðvíninu saman við.
sveppasósa

Brúnaðar kartöflur

  • 1 kg forsoðnar kartöflur
  • 200 g sykur
  • 50 g smjör
  1. Sigtið allan vökva frá kartöflunum og hitið sykurinn á pönnu.
  2. Hristið pönnuna reglulega og þegar sykurinn fer að bráðna má bæta smjörinu saman við, lækka hitann og hella kartöflunum á pönnuna.
  3. Veltið kartöflunum upp úr sykurbráðinni með sleikju/sleif og leyfið þeim að malla þar til þær eru heitar í gegn.
brúnaðar kartöflur uppskrift

Mandarínusalat

  • 3 lúkur spínat
  • 3 lúkur klettasalat
  • ½ pera
  • 1 mandarína
  • ½ granatepli
  • 40 g pekanhnetur
  • Fetaostur
  1. Skerið niður peruna, losið mandarínuna í sundur, náið fræjunum úr granateplinu og saxið hneturnar smátt.
  2. Blandið öllu saman í skál og setjið fetaost saman við eftir smekk.
mandarínusalat

Ferskt og góð tilbreyting frá waldorf salatinu.

Ali hamborgarhryggurinn er bestur

Ali hamborgarhryggurinn er okkar uppáhald!

hamborgarhryggur eldun

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun