Kanilmöffins með glassúr



⌑ Samstarf ⌑
barnvænt í afmæli

Þessar möffins hef ég gert frá því að ég var lítil stelpa. Ég átti úrklippu úr einhverju blaði sem mamma átti mjög lengi og elskaði að baka þessar kökur og vona þið gerið það líka.

bakstur fyrir börn

Elín Heiða elskar þær líka og því valdi hún þessa uppskrift sem eina í bókinni sinni, Börnin baka svo þið finnið hana líka þar.

einfaldar muffins

Kanilmöffins með glassúr

Um 12 stykki

Kanilmöffins uppskrift

  • 150 g smjör við stofuhita
  • 180 g sykur
  • 2 egg
  • 300 g hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 2 tsk. kanill
  • 200 ml rjómi frá Gott í matinn
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.
  3. Bætið eggjunum saman við, einu í einu og skafið niður á milli.
  4. Næst má blanda hveiti, lyftidufti og kanil saman í skál og hella saman við smjörblönduna ásamt rjómanum.
  5. Setjið í sprautupoka/zip lock poka og skiptið niður í 12 bollakökuform.
  6. Gott er að setja pappaform í álform til þess að kökurnar verði fallegri í laginu.
  7. Bakið í 18-20 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum, ekki blautu deigi.

Glassúr

  • 200 g flórsykur
  • 2 msk. vatn
  • Nokkrir dropar af matarlit
  1. Pískið allt saman í skál og smyrjið yfir kældar kökurnar.
rjómi í baksturinn

Rjómi gerir gott betra!

Kanilmöffins

Kanillinn gerir mikið fyrir þessar kökur og þær gefa manni gott í hjartað.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun