Pylsur í brauði



⌑ Samstarf ⌑
Uppskrift fyrir barnaafmæli

GLEYMDA UPPSKRIFTIN!


Þessi frábæra og undursamlega uppskrift var útbúin í fyrra fyrir bókina „Börnin baka“ en endaði þó hins vegar ekki í þeirri bók! Málið er hreinlega þannig að á einhverjum tímapunkti í Indesign yfirferð hef ég eytt opnunni þar sem þessa uppskrift var að finna! Þetta er klárlega ein besta uppskriftin að mati Elínar Heiðu og fengum við fyrst sjokk þegar við komumst að þessu en síðan vissi þetta auðvitað enginn nema við svo það var ekki annað hægt en að hlægja bara að þessu, enda búið að prenta nokkur þúsund eintök af bók með enga pylsubrauðsuppskrift, hahahaha!

Brauð utan um pylsu uppskrift

Tíminn líður síðan á ógnarhraða og við búnar að vera á leiðinni að setja þessa uppskrift hingað inn til að leyfa ykkur öllum að njóta! Það er því vel við hæfi að hefja nýtt ár á svona skemmtilegheitum og þær systur ætla einmitt að baka þessa dásemd í dag, síðasta daginn í jólafríi!

Pylsur í brauði

Pylsur í brauði

20 stykki

  • 120 g smjör
  • 350 ml nýmjólk
  • 1 poki þurrger (11,8 g)
  • 100 g sykur
  • 670 g hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 1 pískað egg
  • 10 pylsur
  • Heinz Nass tómatsósa
  1. Bræðið smjörið í potti og hellið mjólkinni saman við þegar bráðið. Hitið saman við vægan hita þar til ylvolgt (hægt er að setja fingurinn ofan í án þess að finnast blandan heit).
  2. Hellið mjólkurblöndunni þá yfir í skál/könnu og hrærið þurrgerinu saman við, leyfið að standa á meðan annað er undirbúið.
  3. Setjið hveiti, salt og sykur í hrærivélarskálina, gott að nota krókinn til að hnoða.
  4. Hellið mjólkurblöndunni varlega saman við og hnoðið þar til slétt og fín deigkúla hefur myndast.
  5. Gott er að hafa deigið eins klístrað og þið komist upp með, án þess þó að það festist við alla fingur og fleti. Stundum þarf að bæta smá hveiti við en reynið að sleppa við það.
  6. Smyrjið stóra skál að innan með matarolíu, hnoðið deigið stutta stund í höndunum og veltið næst upp úr olíunni í skálinni, plastið skálina og leyfið að hefast í 1 klukkustund.
  7. Skerið pylsurnar til helminga svo úr verði 20 hlutar og hitið ofninn í 210°C.
  8. Skiptið deiginu næst niður í 20 einingar, rúllið hverjum hluta út í lengju sem er aðeins mjórri til endanna.
  9. Rúllið síðan deiglengju utan um hverja pylsu og raðið á bökunarplötu íklædda bökunarpappír.
  10. Penslið með pískuðu eggi og bakið í um 10-12 mínútur eða þar til brauðið fer að gyllast.
  11. Njótið með Heinz Nass tómatsósu.

Heinz nass tómatsósa

Namm, ef þið bara vissuð hvað þessar eru góðar!

Brauð vafið utan um pylsu uppskrift

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun