Hollar nammidöðlur



⌑ Samstarf ⌑
Fylltar döðlur á nammidaginn

Það er svo gott að geta gripið í sætindi í hollari kantinum þegar sætindaþörfin kallar. Hér eru á ferðinni guðdómlega mjúkar döðlur fylltar með hnetusmjöri og stökkri möndlu, nammi namm!

Hvaða nammi er hollt

Ég notaði ferskar Mazafati döðlur að þessu sinni en þær eru ekki mjög stórar en svo mjúkar og djúsí. Þær voru til í Krónunni í Krónumerktum umbúðum. Þið getið að sjálfsögðu notað þær döðlur sem ykkur þykja bestar en þessar komu ótrúlega vel út.

Hollt nammi uppskrift

Hollar nammidöðlur uppskrift

30 bitar

  • 30 stk. ferskar döðlur
  • Um 180 g gróft hnetusmjör
  • 30 stk. Til hamingju möndlur í hýði
  • 80 g dökkt súkkulaði
  • Saxaðar Til hamingju pistasíuhnetur
  • Saxaðar Til hamingju möndlur í hýði
  • Til hamingju gróft kókosmjöl
  1. Byrjið á því að skera rauf í döðlurnar og fjarlægja steininn.
  2. Hrærið hnetusmjörið upp og skiptið á milli daðlanna. Gott er að nota sprautupoka en klippa ágætlega stórt gat á endann.
  3. Stingið næst einni möndlu ofan í hnetusmjörið á hverri döðlu, allt í lagi þó það sjáist í möndluna, bara að hún festist.
  4. Stingið í frysti á meðan annað er undirbúið.
  5. Saxið niður pistasíuhnetur og möndlur og bræðið dökka súkkulaðið.
  6. Takið döðlurnar úr frystinum, rennið súkkulaði yfir þær og stráið næst söxuðum hnetum, möndlum og kókosmjöli yfir þær til skiptis.
  7. Geymið í kæli eða frysti og njótið þegar sætindaþörfin kallar.
Fylltar döðlur með hnetusmjöri og möndlu

Til hamingju möndlurnar eru þær bestu sem hægt er að fá að mínu mati, þú hreinlega finnur gæðin í bragðinu í hverjum bita.

Eitthvað sætt sem er hollt

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun