Jalapeño „Poppers“



⌑ Samstarf ⌑
Superbowl snarl

Þegar maður tekur rjómaostafyllt jalapeño á næsta stig verður útkoman hreint út sagt stórkostleg!

Partýsnakk

Ég rakst inn á svipaða hugmynd á netvafri um daginn og gat ekki annað en prófað að gera mína útfærslu af slíku þar sem ég elska almennt beikonvafið, rjómaostafyllt jalapeño. Að bæta við kjúkling gerir þetta matarmeira og þetta passar allt ótrúlega vel saman, nammi namm!

jalapeño poppers

Jalapeño „Poppers“ uppskrift

20 stykki

  • 2 x kjúklingabringa frá Rose Poultry
  • 10 stk. jalapeño (Ready to eat)
  • 150 g Philadelphia rjómaostur
  • 10-20 beikonsneiðar
  • 110 g púðursykur
  • 1 tsk. paprikuduft
  • 1 tsk. laukduft
  • ½ tsk. chilliduft
  • ½ tsk. cheyenne pipar
  • ½ tsk. salt
  1. Hrærið púðursykri og öllum kryddum saman og skiptið niður í tvær skálar.
  2. Skerið kjúklingabringurnar niður í strimla (c.a 10 úr hverri), setjið í aðra skálina með sykur-kryddblöndunni og veltið vel upp úr henni, geymið á meðan annað er undirbúið.
  3. Skerið jalapeño í tvennt og hreinsið innan úr þeim, fyllið hvern helming með rjómaosti.
  4. Setjið næst eina kryddaða sneið af kjúklingabringu ofan á rjómaostahliðina og vefjið síðan þétt inn í beikon. Það er misjafnt hvort það þurfi að nota heila eða hálfa sneið af beikoni eftir því hvað þær eru stórar. Gott er að miða við að endarnir séu báðir undir jalapeñoinu.
  5. Hitið ofninn í 180°, raðið beikonvöfðu jalapeño á bökunarpappír í ofnskúffu og stráið restinni af sykur/kryddblöndunni yfir, ofan á beikonið.
  6. Bakið í 25-30 mínútur eða þar til beikonið verður stökkt og kjúklingurinn er eldaður.
Beikonvafið jalapeño með kjúkling og rjómaosti

Superbowl er í kvöld og þessi uppskrift er fullkomin fyrir slíkt partý!

Stella atrois með Superbowl

Fátt sem passar betur með þessu en ísköld Stella!

Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun