Kjúklingavefja á kortéri



⌑ Samstarf ⌑
fljótlegur kvöldmatur

Það er fátt betra en máltíð sem tekur stuttan tíma að útbúa! Hér er á ferðinni ein slík sem allir í fjölskyldunni elskuðu, þið getið síðan auðvitað sett það sem hugurinn girnist á milli en þessi samsetning var undursamleg!

kvöldmatur hugmyndir

Nammi namm!

Kjúklingavefja á kortéri

6 stykki (fyrir um 4 manns)

  • 6 stórar tortilla kökur
  • Um 1 ½ box Ali kjúklingastrimlar með salti og pipar (fulleldað)
  • 6 tsk. sýrður rjómi
  • 6 msk. salsasósa
  • Romaine salat
  • 3 avókadó (stöppuð)
  • Rifinn ostur
  • Nachos flögur
  • Matarolía til steikingar
  1. Skerið inn í vefjuna miðja og ímyndið ykkur að henni sé skipt í fjórðunga.
  2. Smyrjið sýrðum rjóma á einn fjórðung og toppið með vel af kjúkling.
  3. Smyrjið salsasósu á næsta og toppið með niðurskornu salati.
  4. Smyrjið stöppuðu avókadó á næsta hluta og setjið loks rifinn ost og nachos flögur á þann síðasta.
  5. Hitið olíu á pönnu og steikið vefjuna við meðalháan hita í nokkrar mínútur á hvorri hlið eða þar til hún brúnast og hitnar í gegn.
  6. Berið fram með salsasósu, sýrðum rjóma og nachos flögum.
Ali tilbúinn kjúklingur í vefjuna

Það er svo mikil snilld að geta gripið fulleldaðan kjúkling til að nota í rétti sem þessa og hér er búið að skera kjúklinginn svo allt er tilbúið beint til samsetningar!

kjúklingavefja
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun