Ostaveisla



⌑ Samstarf ⌑
Öðruvísi pizza með lauk

Ostapizzur slá alltaf í gegn og eru góð tilbreyting frá klassískri pizzu. Hér er á ferðinni pizza með rjómaosti, 4 osta blöndu, mozzarellakúlum og karamellíseruðum lauk, nammi nammi, namm, mögulega eins sú besta pizza sem ég hef prófað!

Pizza uppskrift

Osturinn, laukurinn og allt þetta er algjörlega fullkomið!

Mozzarella perlur á pizzuna

Ostaveisla

Uppskrift dugar fyrir 4 litlar (12 tommu) pizzur

Pizzadeig uppskrift

  • 950 g hveiti
  • 600 ml volgt vatn
  • 1 þurrgersbréf (11,8g)
  • 4 msk. ólífuolía
  1. Setjið þurrefnin í hrærivélarskál og festið krókinn á (þetta deig má einnig hnoða saman í höndunum en þá þarf að gera stóra holu í þurrefnahrúguna og blanda vatni og olíu saman við í nokkrum skömmtum).
  2. Blandið þurrefnunum saman og hellið vatni og ólífuolíu saman við og hnoðið í nokkrar mínútur.
  3. Penslið stóra skál með matarolíu, veltið deigkúlunni upp úr olíunni, plastið skálina og leyfið að hefast í um eina klukkustund.
  4. Skiptið niður í 4 hluta, setjið álegg á hvern botn og bakið við 220°C í um 13-15 mínútur.

Karamellíseraður laukur uppskrift

  • 4 stórir laukar
  • 80 g smjör
  • 2 tsk. salt
  • 6 msk. sykur
  1. Steikið laukinn við meðalháan hita upp úr smjörinu þar til hann mýkist.
  2. Saltið og sykrið og steikið áfram við lágan hita þar til laukurinn fer aðeins að brúnast og karamellíserast, slökkvið þá á hellunni og látið laukinn standa þar til hann fer á pizzuna.

Annað hráefni og samsetning

  • 400 g rjómaostur frá Gott í matinn (við stofuhita)
  • Oregano krydd
  • 1 ½ poki 4 osta blanda frá Gott í matinn
  • 1 ½ + 2 dósir Mozzarellaperlur frá Gott í matinn
  • Klettasalat (1 poki)
  • Furuhnetur
  • 12 sneiðar hráskinka
  • Smá sítrónusafi
  • Gróft salt
  • Góð ólífuolía
  • Balsamikgljái
  1. Smyrjið rjómaosti yfir hvern botn og stráið vel af Oregano yfir.
  2. Skiptið næst lauknum á milli botnanna og dreifið vel úr.
  3. Stráið þá 4 osta blöndu yfir allt og um 20 mozzarellaperlum á hverja pizzu.
  4. Bakið við 220°C í um 15 mínútur og takið úr ofninum þegar kantarnir eru orðnir vel gylltir.
  5. Toppið með klettasalati, furuhnetum, hráskinku, sítrónusafa, ólífuolíu, balsamikgljáa og grófu salti.
Ostapizza með karamelliseruðum lauk

4 osta blandan passar vel á pizzuna sem og annað góðgæti!

Ostapizza

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun