Rjómakennd ostaídýfa sem rífur í



heimagerð ídýfa uppskrift

Hver elskar ekki góðar ídýfur! Það er svo gaman að leika sér með alls kyns slíkar og svipaða hugmynd sá ég á netinu en útfærði eftir mínu höfði. Við buðum upp á þessa ídýfu í partýi og hver einasti maður sem hana smakkaði spurði um uppskrift svo ykkur er sannarlega óhætt að hræra í þessa snilld við fyrsta tilefni!

góð ídýfa uppskrift

Ef ykkur langar í undurgómsætt snarl yfir páskana þá mæli ég með að þið prófið þessa!

rjómaostaídýfa

Rjómakennd ostaídýfa sem rífur í

Ostablanda

  • 150 g fetakubbur frá Gott í matinn
  • 150 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
  • 60 g grísk jógúrt frá Gott í matinn
  • 2 tsk. sítrónusafi
  1. Setjið allt í blandara/matvinnsluvél og maukið saman.
  2. Smyrjið blöndunni næst í nokkuð víða skál/fat sem er um 20-25 cm í þvermál, hellið toppnum yfir (sjá uppskrift að neðan) og njótið með tortilla flögum.

Toppur

  • 50 ml ólífuolía
  • 2 x vorlaukur (saxaður)
  • 30 g furuhnetur
  • 2 x hvítlauksrif (rifin)
  • 1-2 tsk. chilli flögur
  • ½ tsk. gróft salt
  1. Hitið olíuna vel á pönnu og hellið öllu nema grófa saltinu saman við þegar olían er orðin vel heit, lækkið þá hitann alveg niður og leyfið að mýkjast í um eina mínútu.
  2. Leyfið blöndunni að standa í nokkrar mínútur á meðan mesti hitinn fer úr olíunni og hellið síðan óreglulega yfir ostablönduna.
  3. Stráið að lokum grófu salti yfir allt og njótið með tortilla flögum.
rjómaostur í ídýfuna

Mmm….alveg hrikalega góð!

ídýfa uppskrift

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun