Kaldar rjómaostadýfur eru í miklu uppáhaldi hjá mér síðan að Lukka vinkona kynnti mig fyrir slíkri fyrir öööööörfáum árum síðan, tíhí. Það er því gaman að prófa eitthvað nýtt í slíkum efnum og hér kemur ein sem kláraðist upp til agna!

Þessi er matarmeiri en margar því hún er með hakki og svo fer magn af grænmeti og osti ofan á eftir smekk!

Taco ídýfa
- 350 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
- 4 msk. salsasósa
- 400 g nautahakk
- ½ bréf tacokrydd
- Romaine salat
- Rifinn ostur
- Piccolo tómatar
- 1 x avókadó
- Kóríander
- Rauðlaukur
- Nachosflögur
- Pískið rjómaost og salsasósu saman og smyrjið í botninn á eldföstu móti/skál/öðru með smá uppháum köntum. Geymið í kæli á meðan annað er undirbúið.
- Steikið hakkið og kryddið, kælið það niður og setjið yfir rjómaostablönduna.
- Skerið niður grænmetið og setjið það yfir hakkið ásamt ostinum.
- Njótið með nachos flögum.

Namm, þessi er algjör negla!

Ísköld Stella passar síðan einstaklega vel með!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.