Makkarónur með jarðarberjafyllingu



⌑ Samstarf ⌑
auðveldar makkarónur

Makkarónur eru svo fallegar og fágaðar, um leið og þær eru ofur viðkvæmar! Ég er enginn svaka makkarónubakari en elska hins vegar makkarónur. Panta þær oftast hjá Gulla Arnari þegar mikið liggur við en svo er auðvitað gaman að dúlla sér í slíkum bakstri inn á milli.

Franskar makkarónur

Makkarónur eru hinn fullkomni sæti biti og fallegt að gefa nokkrar makkarónur í öskju í gjafir!

franskar makkarónur uppskrift

Makkarónur með jarðarberjafyllingu

15-20 stykki (eftir stærð)

Makkarónur uppskrift

  • 3 eggjahvítur við stofuhita
  • 50 g sykur
  • ¼ tsk. Cream of tartar
  • Matarlitur
  • 210 g flórsykur
  • 100 g möndlumjöl
  1. Hitið ofninn í 140°C og setjið bökunarpappír á tvær ofnskúffur.
  2. Þeytið eggjahvítur þar til þær byrja að freyða og bætið sykrinum saman við í nokkrum skömmtum, þeytið þar til stífir toppar halda sér, bætið  Cream of tartar og matarlit saman við (setjið meira en minna því liturinn fölnar við bakstur) og þeytið aðeins áfram.
  3. Sigtið flórsykur og möndlumjöl í skál, blandið saman og hellið saman við eggjahvíturnar. Blandið varlega saman við með sleikju þar til þið sjáið ekki lengur mikla kekki/korn í blöndunni. Gott er að miða við að blandan geti myndað tölustafinn 8 þegar hún lekur af sleikjunni, sé samt enn þykk.
  4. Setjið blönduna í poka og klippið um 1 cm gat á endann eða notið sprautustút svipaðan í þvermál.
  5. Sprautið jafna hringi á plötuna með smá bil á milli, lyftið bökunarplötunni þá aðeins upp frá borðplötunni og leyfið henni að falla niður nokkrum sinnum til að ná loftbólunum úr.
  6. Leyfið makkarónunum nú að standa á borðinu í 30 mínútur og bakið síðan í um 15 mínútur eða þar til þær lyftast upp (fá fætur).
  7. Kælið í um 10 mínútur og setjið fyllinguna á, geymið svo í kæli.

Jarðarberjafylling uppskrift

  • 100 g smjör við stofuhita
  • 60 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 1 tsk. vanillusykur
  • 260 g flórsykur
  • 50 g Driscolls jarðarber (skorin smátt)
  • Þeytið saman smjör, rjómaost, vanillusykur og flórsykur þar til létt en stíf blanda myndast.
  • Skerið jarðarberin smátt niður og blandið saman við rjómaostakremið.
  • Setjið í poka, klippið um 1 cm gat á endann og sprautið á makkarónurnar. Gott er að para makkarónurnar fyrst saman því þær eru kannski aðeins misstórar, setja eina á hvolf, setja krem og klemma svo með hinni laust saman.
cheesecake fylling í makkarónur

Ég útbjó jarðarberja-ostakökufyllingu á milli og elsta dóttir mín sagði þetta bestu makkarónur sem hún hefði nokkrun tíman smakkað svo þar hafið þið það!

Rósavín og makkarónur

Rósavín + makkarónur = fullkomin blanda

makkarónur uppskrift

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun