Ég held í vonina það sé aaaaaaaalveg að koma sumar! Ég skellti í það minnsta í fyrsta sumarborgarann þetta árið og hann var sannarlega ekki af verri endanum!

Eins einfalt og það er að gera hamborgara þá mæli ég með að þið prófið mismuandi útfærslur því það er hægt að leika sér óendanlega mikið með slíkar. Við fengum svo gott jalapeño majó í matarboði hjá Finni & Þórunni vinum okkar um daginn og varð það kveikjan að þessari samsetningu.

Hamborgari með jalapeño majó
Fyrir 4 manns
- 4 x 200 g hamborgari + brauð
- 4 ostsneiðar (þykkar)
- 4 stórir portobello sveppir
- Kál
- Tómatasneiðar
- Rauðlaukssneiðar
- 1 poki Cavendish franskar – „Flavour Crisp“ (meðlæti)
- Smjör til steikingar
- Salt, pipar, hvítlauksduft, hamborgarakrydd
- Jalapeño majónes (sjá uppskrift að neðan)
- Útbúið jalapeño majónesið og setjið í kæli.
- Hitið franskarnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka og hitið grillið þegar þær eru komnar í ofninn.
- Skerið allt grænmeti niður og steikið sveppina upp úr smjöri og kryddið að vild, geymið.
- Grillið hamborgarana og raðið síðan öllu saman og setjið vel af majónesi.
- Njótið með frönskum og meira jalapeño majónesi til að dýfa frönskunum í.
Jalapeño majónes uppskrift
- 300 g Hellmann‘s majónes
- 3 msk. smátt saxað jalapeño úr krukku frá Old el Paso
- ½ lime (safinn)
- 3 hvítlauksrif (rifin)
- Salt og pipar eftir smekk
- Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun. Gott að nota bæði á hamborgarana og með frönskunum.

Það er súper einfalt að hræra í jalapeño majó og það er geggjað bæði á borgarann og með frönskunum!

Ekki spyrja mig af hverju ég hef ekki prófað þessar áður en þetta eru B E S T U franskar sem við höfum smakkað og verða keyptar reglulega á næstunni, namm!

Namm!

Njótið!
