BBQ tortilla pizza



⌑ Samstarf ⌑
tortilla pizza

Ef þig langar að útbúa eitthvað ofurfljótlegt og gómsætt, þá er það þetta hér!

tortilla pizza

Ég elska Sweet bbq sósuna frá Heinz og hún smellpassar fyrir þessar pizzur!

tortilla pizza

BBQ tortilla pizza

8 tortillur (fyrir 4-6 manns)

  • 700 g Rose Poultry kjúklingalundir (1 poki)
  • 8 mjúkar tortilla kökur
  • Heinz sweet bbq sósa
  • Rauðlaukur x 1
  • Rifinn ostur
  • Kóríander
  • Olía til steikingar
  • Kjúklingakrydd
  1. Steikið kjúklingalundirnar upp úr olíu og kryddið eftir smekk. Gott er að elda fyrst við háan hita þar til þær brúnast og síðan lækka hitann og leyfa þeim að klára að eldast þannig. Passið samt að elda ekki of lengi. Leyfið þeim síðan að hvíla á meðan annað er undirbúið.
  2. Hitið ofninn í 200°C og raðið tortillakökum á bökunarpappír í ofnskúffu/grind.
  3. Smyrjið um 3 msk af bbq sósu á hverja köku, skerið niður kjúklinginn og skiptið á milli ásamt niðurskornum lauk.
  4. Stráið osti yfir allt saman og bakið í 5-7 mínútur.
  5. Toppið síðan með kóríander þegar úr ofninum er komið.

Kjúklingalundirnar eru síðan fljótar að eldast á pönnunni svo þetta tekur enga stund!

Ísköld Stella á kantinum er síðan vel þegin!

tortilla pizza

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun