Vanillu bollakökur með léttu rjómaostakremi



⌑ Samstarf ⌑
krem með rjómaosti og þeyttum rjóma

Það var allt of langt síðan ég hafði bakað eitthvað krúttlegt! Hér hafið þið því sumarlegar og undursamlegar vanillu bollakökur með léttu rjómaostakremi.

rjómaostakrem

Ég sá svipaða útfærslu hjá Natasha’s Kitchen og útfærði um leið og ég bjó til og útkoman var æðisleg!

bollakökur uppskrift

Það er síðan svo gaman að skreyta kökur með ferskum blómum um leið og það er svo sumarlegt!

sumarlegar bollakökur

Vanillu bollakökur með léttu rjómaostakremi

Um 12 stykki

Bollakökur – uppskrift

  • 210 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 80 g smjör við stofuhita
  • 180 g sykur
  • 2 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 100 ml súrmjólk
  • 70 ml mjólk
  1. Hitið ofninn í 170°C og takið til álform, setjið pappaform ofaní.
  2. Blandið þurrefnum saman í skál og leggið til hliðar.
  3. Þeytið smjör og sykur þar til létt og ljóst.
  4. Bætið eggjum saman við, einu í einu og skafið niður á milli og bætið vanilludropum næst saman við.
  5. Hrærið saman súrmjólk og mjólk og setjið til skiptis í skálina til móts við þurrefnin.
  6. Varist að hræra of lengi en skafið vel niður í lokin og blandið saman.
  7. Skiptið niður í bollakökuformin og bakið í 17-19 mínútur eða þar til kökurnar fara að gyllast.
  8. Kælið þær og skreytið síðan með rjómaostakremi.

Rjómaostakrem – uppskrift

  • 150 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita.
  • 260 g flórsykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 200 ml stífþeyttur rjómi
  1. Blandið rjómaosti, flórsykri og vanillusykri saman.
  2. Vefjið þá stífþeytta rjómanum varlega saman við með sleikju.
  3. Sprautið á bollakökurnar með stórum stjörnustút (ég notaði 2D frá Wilton)
  4. Skreytið að vild og geymið í kæli.
rósavín með bollakökunum

Rósavín fer síðan afar vel með þessum krúttlegu kökum!

rjómaostur í rjómaostakrem

Mmmm…..

vanillu bollakökur uppskrift

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun