Ostasalat með döðlum



⌑ Samstarf ⌑
Brauð og Co ostasalat

Maðurinn minn gat ekki hætt að dásama ostasalat frá Brauð og Co sem hann fékk í vinnunni hjá sér um daginn svo ég ákvað að skoða það salat aðeins nánar. Eftir að hafa smakkað salatið og skoðað innihaldslýsinguna vel ákvað ég að láta á þetta reyna og herma þetta góða salat eftir. Útkoman heppnaðist ofurvel og hér hafið þið dásamlega útgáfu af góðu ostasalati!

ostasalat með döðlum

Salatið er gott bæði með brauði og kexi og hægt er að bjóða upp á svona salat við hin ýmsu tilefni! Ostasalöt eru einfaldlega alltof góð og ég skil ekki af hverju maður útbýr þau ekki oftar!

ostasalat

Ostasalat með döðlum


• 80 g Til hamingju saxaðar döðlur
• 1 x Piparostur – kryddostur
• 1 x Mexíkóostur – kryddostur
• 80 g Búri ostur
• 230 g Hellmann‘s majónes
• 2 tsk. dijon sinnep með hunangi
• 2 tsk. sítrónusafi
• 1 tsk. paprikuduft
• 1 tsk. aromat krydd
• 1 tsk. salt
• ½ tsk. pipar
• ½ tsk. Cheyenne pipar

  1. Skerið döðlurnar aðeins smærra niður og setjið í skál.
  2. Skerið alla ostana í litla teninga og bætið saman við döðlurnar.
  3. Hrærið restinni af hráefnunum saman í aðra skál og blandið síðan saman við ostana og döðlurnar.
  4. Berið fram með góðu brauði/kexi.
saumaklúbburinn hugmyndir af veitingum

Mmmmm þetta salat var nokkrum númerum of gott!

ostasalat uppskrift

Mæli með að þið prófið við fyrsta tækifæri!

ostasalat

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun