Þakkargjörðardagurinn eða „Thanksgiving“ er núna á fimmtudaginn og ég ELSKA þessa hátíð! Kalkúnn og tilheyrandi er svo hátíðlegt og þegar þessi hátíð er liðin á helst að vera í jólapeysu út desember, baka mikið af kökum, kveikja á kertum og hafa það huggulegt í bland við allt jólastressið auðvitað, hahaha!
Það eru ekki allir sem leggja í að elda heilan kalkún eða eru mögulega að elda fyrir fáa og þá er tilvalið að elda kalkúnabringur. Ekki skemmir fyrir að þær séu foreldaðar eins og þessar sous vide bringur og þessar hef ég prófað áður og þær eru æðislegar! Eldamennskan er einföld og það er erfitt að klúðra þessu svo ef þið viljið slá í gegn þá mæli ég með!

Mmmm….

Kalkúnabringa á þakkargjörðardaginn
Fyrir um 6 manns
Kalkúnabringa eldun
- 1 x Sous Vide kalkúnabringa frá Ali (fæst í Bónus)
- Smjör til steikingar
- Látið heitt vatn renna í vaskinn, takið pappann af pakkningunni og leggið bringuna í pokanum ofan í vatnið og leyfið að standa þar í 15 mínútur, takið þá upp úr og úr plastinu.
- Bræðið þá væna klípu af smjöri á pönnu og brúnið bringuna á öllum hliðum áður en þið skerið í sneiðar.
Granatepla Waldorfsalat
- 2 gul epli
- 1 msk. sítrónusafi
- 1 granatepli
- 40 g saxaðar pekanhnetur
- 1 dós sýrður rjómi (180 g)
- 200 ml þeyttur rjómi
- 1 msk. sykur
- Flysjið eplin og skerið í litla bita, kreistið sítrónusafann yfir.
- Losið innan úr granateplinu og blandið því saman við ásamt pekanhnetum og restinni af hráefnunum.
- Blandið öllu varlega saman með sleikju og geymið í kæli fram að notkun.
Kalkúnasósa uppskrift
- 1 rauðlaukur
- 3 hvítlauksrif (rifin)
- 1 msk. saxað timian
- 1 msk. hvítvínsedik
- 400 ml kalkúnasoð (úr fernu eða útbúið með krafti)
- 300 ml rjómi
- 1 msk. púðursykur
- 4 msk. maizena sósujafnari
- Salt, pipar, cheyenne pipar
- Ólífuolía
- Smjör
- Skerið laukinn í þunnar sneiðar og steikið upp úr blöndu af smjöri og olíu ásamt hvítlauk og timian við meðalhita þar til hann mýkist.
- Hellið þá hvítvínsedikinu saman við og leyfið því að gufa upp og setjið næst soð og rjóma og náið upp suðunni að nýju og lækkið síðan alveg niður.
- Bætið sósujafnara við og kryddið eftir smekk.
Brúnaðar kartöflur
- 1 kg forsoðnar kartöflur
- 200 g sykur
- 50 g smjör
- Sigtið allan vökva frá kartöflunum og hitið sykurinn á pönnu.
- Hristið pönnuna reglulega og þegar sykurinn fer að bráðna má bæta smjörinu saman við, lækka hitann og hella kartöflunum á pönnuna.
- Veltið kartöflunum upp úr sykurbráðinni með sleikju/sleif og leyfið þeim að malla þar til þær eru heitar í gegn.

Þakkargjörðin verður ekki mikið einfaldari en þetta! Hér á síðunni er síðan að finna alls kyns fleiri hugmyndir fyrir meðlæti svo ég mæli með að þið finnið ykkar uppáhalds meðlæti með bringunum og njótið vel!



































