Hér kemur ein undursamleg úr kökubæklingi Nóa Síríus! Ostakökur eiga alltaf vel við og mér finnst alltaf svo gaman að setja þær í glös svo allir fái sér „desrétt“.

Ostakaka með karamellukeim
Uppskrift dugar í 8-10 glös/skálar
Botn
- 200 g kanilkex
- 30 g smjör (brætt)
- Setjið kexið í blandara og myljið alveg niður þar til sandáferð er komin á kexið.
- Hellið bræddu smjörinu saman við og blandið vel.
- Skiptið niður í glösin/skálarnar og útbúið fyllinguna.
Fylling
- 400 g rjómaostur við stofuhita
- 180 g sykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 400 ml þeyttur rjómi
- Þeytið rjómaost, sykur og vanillusykur saman í nokkrar mínútur þar til blandan verður létt í sér.
- Vefjið þeytta rjómanum saman við með sleikju og skiptið blöndunni niður í glös/skálar og sléttið aðeins úr með skeið.
- Kælið á meðan annað er undirbúið.
Toppur og samsetning
- 50 g Síríus Barón 56% súkkulaði
- 50 g Síríus Doré karamellusúkkulaðidropar
- 100 ml rjómi
- 1 msk. hlynsíróp
- Síríus karamellukurl til skrauts
- Saxið báðar tegundir af súkkulaði smátt niður.
- Hitið rjómann að suðu, hellið yfir súkkulaðið og pískið saman þar til slétt sósa hefur myndast og blandið sírópinu saman við.
- Leyfið hitanum aðeins að rjúka úr og setjið um 2 msk. af sósu yfir hverja ostaköku og rennið henni til svo hún þeki alveg út í brúnir á glasinu/skálinni og kælið að nýju.
- Skreytið með karamellukurli og geymið í kæli.

Hér eru nokkrar aðrar myndir úr bæklingnum og uppskriftirnar við þær finnið þið hér að neðan!

Mmm…
































