Tómatar og mozzarella fara afar vel saman! Um daginn rakst ég á þessa hugmynd á netinu og hreinlega varð að prófa. Þetta var einfalt og fallegt og vöndurinn var ekki lengi að hverfa á þessu heimili! Gott er að bera túlípantabúntið fram með ristuðu baguette og pestó.

Mozzarella túlípanar
- 15 kirsuberjatómatar
- 15 mozzarellakúlur frá Gott í matinn
- Basilíka til skrauts
- Skerið kross ofan í hvern tómat, ekki alveg niður heldur eins og ¾ af honum.
- Skafið innan úr með endanum á skeið eftir fremsta megni.
- Komið einni mozzarellakúlu fyrir í tómatinum og stingið prjóni í gegn um hvoru tveggja.
- Endurtakið og raðið í fallegt glas, skreytið með basilíkulaufum.

Mmmm þetta var bæði fallegt og gott!



































