Þessi pizza er hreint út sagt guðdómleg og skemmtileg tilbreyting frá klassískri pizzu! Að elda kjúklinginn og baka pizzuna í pizzaofninum tekur þetta auðvitað alveg á næsta stig þó vel sé hægt að njóta pizzunnar úr hefðbundnum ofni líka!
Mæli sannarlega með að þið prófið um helgina!

BBQ pizza með kjúklingi
3 pizzur
Kjúklingapizzur
- 3 x pizzadeig að eigin vali
- 6-9 msk. Heinz sweet BBQ sósa
- 3 x grillaður kjúklingalæri/leggur (sjá uppskrift að neðan)
- 1 x rauðlaukur
- 1 dós Mozzarellakúlur
- 1 x ferskur maís
- Lítið pepperoni eftir smekk
- Rifinn ostur
- Sýrður rjómi (yfir í lokin)
- Hitið pizzaofninn (um 400°C) eða bakaraofninn (um 220°C).
- Fletjið pizzadeigið út og smyrjið með Heinz bbq sósu.
- Skerið rauðlaukinn í fínar sneiðar og raðið á botninn ásamt niðurskornum kjúklingi, maísbaunum, mozzarellakúlum, pepperoni og rifnum osti.
- Bakið og toppið síðan með smá sýrðum rjóma.
Grillað kjúklingalæri + leggur
- 3 x kjúklingalæri + leggur í einum bita
- 3 msk. smjör (við stofuhita)
- 2 hvítlauksgeirar (rifnir)
- 1 msk. saxað rósmarín
- Salt, pipar, kjúklingakrydd
- ½ sítróna
- Stappið saman smjör, hvítlauk og rósmarín, smyrjið/berið á kjúklinginn.
- Leggið í eldfast mót, kryddið eftir smekk og leggið sítrónu í mótið.
- Grillið í pizzaofninum við 240°C í um 20 mínútur eða þar til kjarnhiti nær 74°C. Ef þið grillið í ofni gæti tíminn aðeins lengst og þá má lækka hitann niður í 200°.

Þessi bbq sósa er algjörlega mín uppáhalds!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































