Það má sannarlega leika sér með góða osta og gaman að bera þá fram á nýstárlegan máta!

Ég setti þessa fallegu ostatertu ofan á bakka með kjöti, kexi og öðru gómsætu en hana má ýmist bera fram eina og sér eða með einhverju öðru, en gott er að hafa í það minnsta kex/brauð með ostunum og berjunum.

Ostaterta
- 1 x Dala hringur
- 1 x Dala Auður
- 1 x Dala kastali
- Jarðarber, brómber, hindber
- Fersk blóm
- Hunang
- Setjið Dala hring neðst, þá næst Auði og snyrtið kastalann til svo úr verði lítill hringur á toppinn (notið afskurð til að bera fram til hliðar á disknum).
- Skreytið með berjum og ferskum blómum.
- Njótið með góðu kexi/brauði.

Jömmí!



































