Svalandi og gott límonaði er tilvalinn sumardrykkur. Hér er ég búin að útbúa heila könnu sem gott er að bjóða upp á í næstu grillveislu, útilegu eða öðrum fögnuði!

Plastvörurnar frá Royal eru frábærar á pallinn eða í útileguna. Þær eru BPA fríar og eru svoooo fallegar!

Mangó límonaði
- 2 l. Sprite
- 15 msk. Lie Gourmet mango Pulp edik
- 2 lime (sneiðar)
- 150 g bláber
- 2 stk. mangó (skorin í teninga)
- 1 lúka mynta
- Ísmolar
- Hellið Sprite og mangó ediki saman í stóra könnu og blandið saman.
- Setjið lime sneiðar, mangóteninga, bláber og myntulauf saman við og blandið vel.
- Njótið með vel af ísmolum.

Lie Gourmet vörurnar eru algjörar sælkeravörur og þið finnið mikið úrval af þeim í Húsgagnahöllinni.

Allar vörurnar sem þið sjáið í þessari færslu fást í Húsgagnahöllinni!
LW Royal kanna
Royal plastglas
Lie Gourmet mangó pulp
Nordal Bamboo kertalukt (notuð sem blómavasi hér)


































