Kalt pasta hentar ofurvel í nesti fyrir ýmis tilefni, í útileguna eða bara sem máltíð heima fyrir! Þetta hér er einfalt og ljúffengt og ég mæli með að þið prófið!
Mmmm…

Kalt pasta með kjúkling og grænmeti
Fyrir um 5 manns
- 500 g Dececco skrúfupasta
- Um 700 g grilluð kjúklingalæri/bringur
- 180 g piccolo tómatar
- 1 rauðlaukur
- Lítil dós gular baunir (c.a 165 g)
- Dressing (sjá uppskrift að neðan)
- Brauðteningar
- Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka og kælið strax.
- Pískið í dressinguna og blandið henni saman við pastað.
- Skerið kjúklinginn í strimla ásamt því að skera niður lauk og tómata og blandið næst öllu saman.
- Toppið með brauðteningum og njótið.
Pastadressing
- 140 g majónes
- 60 g sýrður rjómi
- 40 g AB mjólk
- 1 msk. Oscar fljótandi nautakraftur
- 3 msk. hvítvínsedik
- 1 tsk. salt
- ½ tsk. pipar
- Pískið allt saman og geymið í kæli þar til blanda á saman við pastaskrúfurnar.
- Ef taka á soðið pasta og dressingu með í ferðalag er ýmist hægt að geyma það aðskilið eða blanda því saman nokkrum dögum áður. Best er hins vegar að grilla kjúklinginn og skera grænmetið rétt áður en réttarins á að njóta.

Dececco pastaskrúfurnar eru svo góðar, elska áferðina á þeim!

Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































