Grillostur með pestó og klettasalati



⌑ Samstarf ⌑
grillostur

Í fyrrasumar í skemmtiferð okkar vinahópsins grillaði Sandra vinkona þennan grillost með pestó við góðar undirtektir hjá öllum í hópnum. Ég ákvað því að slá til og prófa þetta loksins sjálf, það er búið að taka mig tæpt ár að prófa sem er auðvitað alveg galið miðað við hversu einfaldur þessi réttur er! Þetta er fullkominn forréttur, snarlréttur eða sem meðlæti með öðrum mat svo nú verðið þið að prófa!

gott á grillið

Grillostur með pestó og klettasalati – uppskrift

  • 2 x Grillostur frá MS gott í matinn
  • Klettasalatspoki
  • Grænt, ferskt pestó
  • Furuhnetur (ein lúka)
  • Salt og pipar eftir smekk
  1. Skerið ostinn niður í lengjur og grillið við háan hita í nokkrar mínútur. Snúið ostinum reglulega á grillinu þar til grillrákir byrja að myndast og osturinn að linast upp.
  2. Setjið síðan vel af pestó yfir ostinn ásamt furuhnetum og saltið og piprið eftir smekk.
  3. Njótið strax á meðan osturinn er heitur.

Mmm…

grillostur með pestó
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun