Karamelluepli með hnetum



⌑ Samstarf ⌑
karamelluhúðuð epli

Ég hef ansi lengi ætlað að gera útfærslu af karamellueplum og ekki spyrja mig af hverju ég hef ekki prófað það fyrr! Þetta er ofur einfalt og ó svo ljúffengt!

Mmmm….

karamellu epli

Karamellu epli með hnetum

Uppskrift dugar fyrir 5 epli

  • 5 græn epli
  • 320 g Werther‘s Cream Toffees karamellur
  • 2 msk. rjómi
  • 100 g hakkaðar heslihnetur
  • 5 íspinnaprik/önnur prik til að stinga í eplin
  1. Skolið og þerrið eplin vel, leggið til hliðar.
  2. Setjið karamellur og rjóma saman í skál og bræðið við meðalháan hita í örbylgjuofni. Gott er að bræða þær í um 20 sekúndur í senn og hræra á milli þar til fljótandi karamella hefur myndast.
  3. Hellið heslihnetunum á disk, stingið pinna í eplin, dýfið þeim í karamelluna og setjið karamellu upp á hliðarnar með skeið, rúllið síðan upp úr heslihnetunum og leggið á bökunarpappír.
  4. Karamellan tekur sig nokkuð fljótt en best er að geyma eplin í kæli eigi ekki að njóta þeirra strax.

Þessar karamellur eru svo góðar, bráðna í munni og passa svo vel með grænu eplinu!

epli með karamellu

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun