Ég ELSKA súkkulaðibitakökur! Það er samt fátt sem veldur mér meiri vonbrigðum en þurrar slíkar svo ég hef gert ýmsar tilraunir í gegnum tíðina. Í Seattle er bakarí/ísbúð sem heitir Hello Robin og almáttugur, smákökurnar þar eru þær allra bestu! Hér var ég að reyna að apa þær eftir, prófaði að brúna smjörið og nota öll trixin í bókinni og ég ætla að leyfa mér að segja að þetta eru þær bestu súkkulaðibitakökur sem ég hef bakað!

Allar vörurnar sem þið sjáið á myndunum eru frá Húsgagnahöllinni en þar er svooooo mikið fallegt til! Endalaust úrval af brettum, kökudiskum og fínheitum!
Súkkulaðibitakökur uppskrift
Um 22-24 stykki
- 280 g hveiti
- 1 tsk. matarsódi
- 1 tsk. kartöflumjöl
- 1 tsk. salt
- 170 g smjör (brætt og brúnað)
- 150 g púðursykur
- 100 g sykur
- 1 egg + 1 eggjarauða
- 2 tsk. vanilludropar
- 200 g súkkulaðidropar
- Hrærið saman hveiti, matarsóda, kartöflumjöli og salti og leggið til hliðar.
- Bræðið smjörið og hrærið stanslaust við meðalhita þar til það byrjar að brúnast, leyfið hitanum aðeins að rjúka úr.
- Blandið næst báðum tegundum af sykri saman við brædda smjörið og pískið þá eggi + eggjarauðu saman við ásamt vanilludropum.
- Blandið þurrefnunum nú saman við og blandið saman, að lokum má síðan vefja súkkulaðidropunum saman við deigið.
- Setjið deigið í plast og kælið í að minnsta kosti 2 klukkustundir, líka í lagi að kæla yfir nótt.
- Takið deigið síðan úr ísskápnum um 20 mínútum áður en þið ætlið að baka úr því.
- Hitið ofninn í 170°C og vigtið um 40 g fyrir hverja köku og rúllið í kúlu. Raðið þeim á bökunarplötu með gott bil á milli og bakið í 12-15 mínútur.
- Kælið þær á kæligrind áður en þeirra er notið.

Volgar smákökur og ísköld mjólk eru hin fullkomna tvenna að mínu mati! Ekki er verra þegar mjólkin er í fallegu glasi en þessi Broste Sandvig glös eru í miklu uppáhaldi hjá mér!

Þessi fallegi Fine DL Rural bakki er síðan æðislegur, hvort sem það er undir kökur, á ostabakkann eða aðeins sem punt inn í eldhúsi!



































