Hér höfum við ofureinfalt súkkulaðigott þar sem ég er búin að brjóta karamellubrjóstsykur, saltkringlur og pistasíukjarna yfir brætt dökkt súkkulaði. Gott að geta laumað sér í einn og einn bita þegar sætindaþörfin hellist yfir.
Mmmm….svo einfalt og gott!

Súkkulaðigott með karamellu
- 280 g dökkt súkkulaði
- 80 g Werther‘s Original Cream Candies
- 60 g saltkringlur
- 30 g pistasíukjarnar
- Setjið brjóstsykur í einn poka og saltkringlur í annan og myljið gróft með kökukefli/buffhamri.
- Klæðið um 20 x 20 cm kökuform að innan með bökunarpappír.
- Bræðið súkkulaðið, hellið í kökuformið og sléttið úr.
- Stráið muldum karamellubrjóstsykri, saltkringlum og pistasíum yfir allt og setjið í frysti í um 30 mínútur til klukkutíma.
- Takið út og brjótið niður í bita.
- Best finnst mér að geyma svona súkkulaðigott í ísskápnum.

Þessi karamellu brjóstsykur er einn af mínum uppáhalds!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































