Fyrr í sumar sá ég útfærslu af svipuðu salati á veraldarvefnum og hef ekki getað hætt að hugsa um það! Þetta er svo ferskt og gott og hægt að borða þetta eitt og sér eða hafa sem meðlæti með öðrum mat.
Mmm….

Vatnsmelónusalat
- ½ meðalstór vatnsmelóna
- 2 lúkur klettasalat
- 100 g pistasíukjarnar
- 2 msk. mynta
- 1 x fetakubbur
- 1 ½ msk. ólífuolía
- 1msk. hunang
- 1 msk. balsamikedik
- Skerið melónu í munnstóra bita
- Saxið pistasíur og myntu
- Myljið fetakubbinn
- Blandið klettasalati, melónubitum, myntu, pistasíum og feta saman.
- Hrærið ólífuolíu, hunang og balsamikedik saman og hellið yfir salatið, njótið samstundis.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Fjarðarkaup!


































