Hrökkkex – áleggshugmyndir



⌑ Samstarf ⌑
hrökkkex álegg

Ég veit ekki með ykkur en ég er búin að fara hressilega út af sporinu núna seinni hluta sumars í mataræðinu! Auðvitað á maður að reyna að halda í hollustuna en þegar það er sumarfrí og engin rútína í gangi getur það reynst erfitt. Það er síðan líka oft erfitt að hoppa aftur á vagninn en þessi snilldar hrökkkex eru alveg að hjálpa til því þau eru hvert öðru betra og síðan er hægt að setja alls kyns hollt og gott álegg ofan á!

Hrökkkex – áleggshugmyndir

Avókadó hrökkkex

  • Niðurskorið avókadó
  • Hrært egg (saltað örlítið)
  • Sprettur
  • Vorlaukur
  • Chilliflögur
háegismatur hugmyndir

Kotasælu hrökkkex

  • Kotasæla
  • Niðurskorin paprika
  • Niðurskorinn rauðlaukur
  • Sesamkrydd
hollur millibiti

Möndlusmjör og álegg á hrökkkex

  • Möndlusmjör
  • Skinka
  • Ostur
  • Harðsoðið egg
  • Agúrka
  • Tómatar
  • Sprettur
  • Pipar
hollar uppskriftir

Hollt eggjasalat á hrökkkex

  • ½ avókadó
  • 1 harðsoðið egg
  • 2 msk. kotasæla
  • Salt og pipar
  • Sprettur
  1. Stappið avókadó, egg og kotasælu saman, setjið á hrökkkexið.
  2. Saltið og piprið eftir smekk og toppið með sprettum.
áleggshugmyndir fyrir hrökkkex

Hér sjáið þið nokkrar hugmyndir og ég vona þau muni slá í gegn hjá ykkur líkt og á þessu heimili!

hollt hrökkbrauð eða hrökkkex
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun