Það er endalaust hægt að prófa nýtt álegg á pizzur. Ég hef lengi notað rjómaost á slíkar og finnst það gera þær extra djúsí og góðar. Núna prófaði ég að nota rjómaost með grillaðri papriku og chili og almáttugur það tók þetta alveg á næsta stig! Mér fannst þetta passa hrikalega vel saman og mæli með að þið prófið!

Pizza með rjómaosti
Uppskrift dugar fyrir 4-5 tólf tommu pizzur
Botnar
- 700 g hveiti
- 1 pk þurrger (11,8 g)
- 1 tsk. salt
- 400 ml volgt vatn
- 4 msk. ólífuolía
- Setjið öll þurrefnin saman í skál og blandið saman.
- Hellið volgu vatni ásamt ólífuolíu saman við og hnoðið þar til deigkúla hefur myndast.
- Setjið deigið í skál sem búið er að pensla að innan með matarolíu, plastið og leyfið að hefast í um klukkustund.
- Skiptið deiginu niður, fletjið út og setjið áleggið á.
Álegg
- Pizzasósa
- Pepperoni
- Rjómaostur með grillaðri papriku og chili frá Gott í matinn
- Paprika
- Sveppir
- Rauðlaukur
- Oregano krydd
- Pizzaostur frá Gott í matinn

Mmmm það er svooooo gott að setja þennan rjómaost á pizzuna!



































