Brakandi kjúklingaleggir með sinnepssósu



⌑ Samstarf ⌑
kjúklingaleggir

Einföld máltíð á 30 mínútum er alltaf góð hugmynd! Þessir djúsí kjúklingaleggir frá Ali fást frosnir og þá þarf aðeins að hita og bera fram með uppáhalds meðlætinu þínu! Að þessu sinni hitaði ég franskar með leggjunum og útbjó ljúffenga sinnepssósu á meðan þetta var í ofninum sem smellpassaði með! Maðurinn minn sagði að þetta væri alveg eins og American Style sósan og ég ætla að vera sammála honum með það!

Mmmm!

djúsí kjúklingur

Brakandi kjúklingaleggir með sinnepssósu

Fyrir um 4 manns

  • 2 pk. brakandi kjúklingaleggir frá Ali
  • Franskar að eigin vali
  • Hunangs- sinnepssósa (sjá uppskrift hér að neðan)
  1. Hitið kjúklingaleggi og franskar samkvæmt leiðbeiningum á pakka og berið fram með hunangs- sinnepssósu.

Hunangs- sinnepssósa uppskrift

  • 100 g majónes
  • 100 g sýrður rjómi
  • 2 msk. hunangs dijon sinnep
  • 2 msk. hunang
  • 1 tsk. sítrónusafi
  • Salt og pipar eftir smekk
  1. Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun.
einfaldur kvöldmatur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun