Kjötbollur í brúnni sósu



⌑ Samstarf ⌑
kjötbollur eins og hjá mömmu

Gamaldags kjötbollur í brúnni sósu með kartöflumús, grænum baunum og rabarbarasultu er nostalgía fyrir allan peninginn. Ég gerði svona bollur í haust og setti inn smá könnun á Instagram hjá mér hvort fólk kynni almennt að útbúa slíkar eða ekki. Um 70% sögðust kunna þetta en hátt í 30% sögðust það ekki og væru til í að vita hvernig þetta væri gert. Ég ákvað því að svara kallinu og hér kemur þessi dásemd!

Mmmm……

gamaldags kjötbollur uppskrift

Kjötbollur í brúnni sósu uppskrift

Fyrir 4-5 manns

Kjötbollur og sósa uppskrift

  • Um 700 g nýtt kjötfars
  • 50 g smjör
  • 300 ml vatn
  • 300 ml rjómi
  • 2 msk. fljótandi nautakraftur
  • 3-4 msk. maízenamjöl/sósuþykkjari
  • Sósulitur
  • Salt og pipar
  1. Bræðið smjörið við meðalháan hita.
  2. Baðið matskeið í smjöri og mótið með henni kjötbollur úr farsinu, bætið alltaf smjöri á hana á milli til að farsið festist ekki við.
  3. Steikið bollurnar vel á öllum hliðum.
  4. Hellið þá vatni, rjóma og fljótandi krafti saman við og þykkið með maízenamjöli.
  5. Litið með sósulit sé þess óskað og kryddið aðeins með salti og pipar eftir smekk.
  6. Leyfið bollunum að malla aðeins í sósunni á meðan þið klárið kartöflumús og takið til annað meðlæti.

Kartöflumús uppskrift

  • Um 1 kg bökunarkartöflur
  • 40 g smjör
  • 150 ml nýmjólk
  • 2 msk. sykur
  • 1 tsk. salt
  1. Flysjið og skerið kartöflurnar niður í bita til að flýta fyrir suðunni.
  2. Sjóðið þar til þær mýkjast og setjið þá yfir í hrærivél með K-inu eða í skál og notið kartöflustappara.
  3. Bætið smjöri, mjólk, sykri og salti saman við og blandið saman þar til kartöflumús hefur myndast.

Annað meðlæti

  • ORA grænar baunir
  • Rabarbarasulta
  1. Berið kjötbollurnar fram með kartöflumúsinni, grænum baunum og rabarbarasultu!
  2. Það má hita baunirnar í potti, örbylgjuofni eða bera þær fram kaldar, bara það sem ykkur þykir best!
kjötbollur og brún sósa

Grænar ORA baunir eru algjörlega ómissandi með ákveðum réttum líkt og kjötbollum í brúnni sósu að mínu mati!

kjötbollur í brúnni sósu
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun