„Crunchwrap“



⌑ Samstarf ⌑
„Crunchwrap“

Hér er á ferðinni tilbreyting fyrir „Taco Tuesday“ sem ég lofa að mun slá í gegn hjá ykkur!

Svoooo gott!

„Crunchwrap“

„Crunchwrap“

Uppskrift dugar fyrir 8 stykki eða fyrir um 4 manns

  • Um 500 g nautahakk
  • ½ poki Taco krydd
  • 8 stórar tortilla kökur
  • 8 litlar tortilla kökur
  • 8 msk. sýrður rjómi
  • 16 msk. ostasósa
  • Maarud tortilla chili cheese flögur
  • Rósakál/Iceberg saxað
  • 4 tómatar saxaðir
  • Rifinn ostur
  • Guacamole (sjá uppskrift að neðan)
  • Olía til steikingar
  1. Steikið hakkið og kryddið, geymið.
  2. Smyrjið miðjuna á stóru tortilla kökunni með um 1 msk. af sýrðum rjóma.
  3. Setjið næst hakk yfir og þá um 2 msk. af ostasósu.
  4. Næst má raða tortilla flögum yfir ostasósuna og setja kál, tómata og rifinn ost ofan á.
  5. Að lokum má setja litla tortilla köku ofan á allt og bretta hina stóru upp á hana.
  6. Steikið við meðalhita á pönnu þar til kakan byrjar að gyllast og verður stökk.
  7. Skerið til helminga og berið fram með guacamole og Maarud tortilla flögum!

Guacamole uppskrift

  • 3 lítil avókadó
  • 100 g piccolo tómatar
  • ½ rauðlaukur
  • 1 msk. lime
  • Salt og pipar
  1. Saxið laukinn og tómatana niður.
  2. Stappið avókadó og kreistið lime yfir.
  3. Blandið öllu saman og kryddið eftir smekk.
„Crunchwrap“

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun