Hrískropp var eina nafnið sem mér datt í hug þegar ég útbjó þessa uppskrift. Hér er ég búin að blanda saman klassískri Rice Krispies köku með Nóa smákroppi og útkoman var hreint stórkostleg!
Mmmm….

Rice Krispies kaka með rjóma
Botn
- 150 g Síríus suðusúkkulaði
- 40 g smjör
- 4 msk. sýróp
- 100 g Rice Krispies
- 150 g Nóa Smákropp
- Bræðið saman suðusúkkulaði, smjör og sýróp, leyfið að sjóða saman örskamma stund og slökkvið þá á hellunni.
- Bætið Rice Krispies og smákroppi saman við og blandið vel.
- Klæðið botninn á um 20 cm smelluformi með bökunarpappír og hellið blöndunni í formið, sléttið úr eins og unnt er og kælið áður en þið setjið toppinn á.
Toppur
- 300 ml þeyttur rjómi
- 1 banani
- ½ poki af Nóa Smákroppi
- Nokkur jarðarber
- Karamellusósa
- Skerið bananann í bita og blandið saman við rjómann, smyrjið yfir hrískropps botninn.
- Toppið með niðurskornum jarðarberjum, smákoppi og karamellusósu.

Hinn fullkomni og súper einfaldi eftirréttur!



































