Hrekkjavökumús



⌑ Samstarf ⌑
eftirréttur fyrir halloween

Ég reyni að gera nýjar uppskriftir fyrir Hrekkjavökuna á hverju ári og hér kemur undursamleg súkkulaðimús með karamellu og rjóma, toppuð á Hrekkjavökulegan máta!

Einfalt og guðdómlega gott!

hrekkjavaka uppskriftir

Hrekkjavökumús

Uppskrift dugar í um 6 skálar/glös/krukkur

Súkkulaðimús

  • 200 g dökkt súkkulaði
  • 50 g smjör
  • 2 egg
  • 250 ml þeyttur rjómi
  1. Bræðið súkkulaði og smjör saman í vatnsbaði og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr.
  2. Pískið eggin og bætið saman við súkkulaðiblönduna í nokkrum skömmtum, blandið/pískið vel saman.
  3. Setjið um 1/3 af þeytta rjómanum saman við og vefjið saman við súkkulaðiblönduna með sleikju. Bætið þá restinni af rjómanum saman við og blandið þar til slétt áferð hefur myndast.
  4. Hellið músinni í glös og kælið á meðan annað er undirbúið. 

Saltkaramella

  • 180 g Werther‘s Original saltkaramellur (mjúkar)
  • 6 msk. rjómi
  1. Hitið saman í potti þar til fljótandi karamella hefur myndast.
  2. Leyfið aðeins að kólna áður en þið setjið væna matskeið af karamellu ofan á hverja súkkulaðimús.

Rjómi og toppur

  • 300 ml þeyttur rjói
  • 10-15 Oreokex
  • Trolli hlaupaugu
  • Trolli hlaupormar
  • Sykuraugu
  1. Skerið Oreokex til helminga með beittum hníf.
  2. Setjið síðan um 5 Oreokex í blandara og blandið þar til fín mylsna hefur myndast (gott að nota hér kexin sem brotnuðu við skurðinn ef einhver slík eru til staðar).
  3. Sprautið nú þeyttum rjóma yfir karamelluna á hverri mús, stráið Oreomylsnu yfir allt og toppið með ýmist augu og ormum eða tveimur hálfum Oreokexum og sykuraugum fyrir leðurblöku.
góðar karamellur

Þessar karamellur eru eitthvað annað góðar!

hugmyndir fyrir hrekkjavöku

Einfalt að nota Trolli hlaupaugu og orma til að skreyta með!

súkkulaðimús með karamellu

Oreo leðurblaka er ansi gómsæt!

halloween dessert ideas

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun