Enginn tími til að gera góðgæti fyrir hrekkjavökuna? Þessi hérna uppskrift er þá málið, þið eruð nefnilega pottþétt fljótari að útbúa þessa snilld heldur en að fara út í búð að kaupa eitthvað tilbúið!
„Ísí písí“

Skrímsla hrískökur
- 200 g Síríus suðusúkkulaði
- 40 g smjör
- 220 g sýróp
- 150 g Eitt sett lakkrískurl
- 150 g Rice Krispies
- Kökuskraut
- Sykuraugu
- Klæðið skúffukökuform að innan með bökunarpappír.
- Bræðið súkkulaði, smjör og sýróp saman í potti þar til bráðið, leyfið að sjóða saman í um 30 sekúndur og slökkvið þá á hellunni.
- Hrærið Rice Krispies og Eitt sett kurli saman við og hellið í bökunarformið, sléttið aðeins úr.
- Stráið kökuskrauti í hrekkjavökulitunum yfir allt og þrýstið skrímslaaugum niður hér og þar.
- Kælið í að minnsta kosti 30 mínútur áður en þið skerið í bita.

Ég elska að setja lakkrís í hrískökur, finnst það passa svo ótrúlega vel. Því má hins vegar skipta út fyrir súkkulaðiperlur, smákropp eða karamellukurl ef ykkur langar!


































