Hér kemur „einn með öllu“ fyrir næsta partý! Það er alltaf gaman að setja saman svona bakka og hér er bæði kjúklingur og grænmeti borið fram með ídýfu og bbq sósu.
Á meðan kjúklingurinn er í ofninum er tilvalið að skera niður grænmetið og bakkinn getur þannig verið klár á um 15 mínútum.

Veislubakki með alls konar
- 1 poki Ali kjúklingafranskar
- 1 bakki Ali bringubitar
- Ídýfa
- BBQ sósa
- 1 x agúrka
- 1 x paprika
- 10 gulrætur
- ½ blómkálshaus
- 5 stilkar sellerí
- 1 poki saltkringlur
- Hitið kjúklingabitana við 180°C í 15 mínútur.
- Skerið grænmetið niður á meðan og raðið síðan öllu saman á bakka.
- Berið fram með bbq sósu og ídýfu.

Mmmm….



































