Saltkringlur eru sívinsælar á októberfestum og hér er kominn réttur sem minnir eilítið á slíkar.

Saltkringlubollur með heitri rjómaostaídýfu
Saltkringlubollur
- 1 pk. þurrger (12 g)
- 1 msk. sykur
- 150 ml volgt vatn
- 390 g hveiti
- 1 tsk. salt
- 3 msk. hunang
- 3 msk. ólífuolía
- 500 ml sjóðandi vatn
- 3 msk. matarsódi
- Gróft salt
- Hrærið þurrgeri saman við sykur og volgt vatn og leyfið að standa á meðan þið vigtið önnur hráefni í bollurnar.
- Blandið saman hveiti, salti, hunangi og ólífuolíu og hellið þurrgersblöndunni saman við. Hrærið stutta stund með króknum á hrærivélinni og síðan í höndunum (eða aðeins í höndunum).
- Penslið skál að innan með ólífuolíu, veltið deigkúlunni upp úr henni, plastið skálina og leyfið deiginu að hefast í að minnsta kosti klukkustund.
- Skiptið þá deiginu niður í 16 einingar og mótið litlar bollur.
- Hellið sjóðandi heitu vatni yfir matarsóda í skál og veltið hverri bollu upp úr sjóðandi vatninu og raðið næst í kringlótt eldfast mót/pönnu.
- Skerið smá kross ofan á hverja bollu og stráið salti yfir.
- Útbúið rjómaostaídýfuna (sjá uppskrift að neðan) og smyrjið í miðjuna.
- Bakið við 190°C í 17-20 mínútur eða þar til bollurnar eru orðnar vel gylltar og osturinn bráðinn.
Rjómaostaídýfa
- 130 g Óðals Tindur (rifinn)
- 100 g rjómaostur frá Gott í matinn (við stofuhita)
- 100 g rjómaostur með papriku og chili frá Gott í matinn (við stofuhita)
- Hrærið öllum ostategundunum saman í skál og smyrjið síðan yfir miðjuna á eldfasta mótinu.

Saltkringlubollur og heit rjómaostaídýfa er klárlega málið í næsta partý!



































