Almáttugur ekki spyrja af hverju ég er ekki búin að prófa að útbúa þessa dásemd fyrr! Íris Thelma vinkona sagði mér frá því að vinnufélagi hennar hefði komið með svona böku í vinnuna og ég yrði að prófa, ég hugsa það sé að minnsta kosti komið ár síðan og loksins vind ég mér í þetta mál!
Það er ofureinfalt að útbúa „Banoffee Pie“, sérstaklega þegar maður notar tilbúið Dulce De Leche. Banani og kaffi gefa bökunni nafnið eða „banana and coffee = banoffee“. Mér fannst einstaklega gott að nota instant kaffiduft í rjómann en ef þið viljið sleppa kaffibragðinu þá má það að sjálfsögðu.

„Banoffee“ baka
- 220 g hafrakex frá Frón
- 50 g pekanhnetur
- 100 g smjör
- 1 krukka Dulce De Leche (um 370 g)
- 3 meðalstórir bananar
- 400 ml rjómi
- 2 msk. sykur
- 1 msk. instant kaffiduft (má sleppa)
- Rifið dökkt súkkulaði (til skrauts)
- Byrjið á því að útbúa botninn með því að mala saman hafrakex og pekan hnetur þar til áferðin minnir á sand.
- Klæðið botninn á um 20 cm smelluformi með bökunarpappír og spreyið matarolíuspreyi yfir og upp kantana að innan.
- Bræðið smjörið og hellið yfir kexmylsuna, blandið vel saman, hellið í kökuformið og þjappið í botninn og aðeins upp kantinn. Frystið í um 15 mínútur.
- Hellið Dulce De Leche næst yfir botninn.
- Skerið bananana í sneiðar og raðið yfir karamelluna.
- Þeytið næst saman rjóma, sykur og instant kaffiduft þar til topparnir halda sér.
- Smyrjið yfir bananana og toppið með smá rifnu dökku súkkulaði.
- Kælið í að minnsta kosti tvær klukkustundir áður en þið losið úr forminu og skerið í sneiðar.

Hafrakex + pekan hnetur í botninn eru fullkomin tvenna!



































