Ég er búin að ætla að prófa þennan rétt ansi lengi en eins og oft vill verða er óskalistinn af uppskriftum ansi langur og sumt tekur lengri tíma að rata hingað inn en annað! Þetta er í raun bara rjómalöguð lúxusútgáfa af hakk + spagettí ef á það er horft en mikið gaman að breyta aðeins til og fjölskyldan elskaði þennan rétt!
Mmmm…..

Milljón dollara spagettí
Fyrir um 6 manns
- 400 g Dececco spaghetti
- 700 g nautahakk
- 1 laukur (saxaður)
- 4 hvítlauksrif (rifin)
- 2 x Heinz pastasósa með basil (2 x 350 g)
- 500 ml rjómi
- 50 g rifinn parmesan ostur
- 1 msk. oregano
- Salt og pipar
- 150 g rifinn ostur
- Smjör og olía til steikingar
- Útbúið rjómasósuna með því að steikja 2 hvítlaukrif í smjöri og bæta rjóma og parmesan osti saman við þegar laukurinn fer að ilma. Kryddið með oregano, salti og pipar og leyfið sósunni að þykkna á meðan annað er útbúið.
- Sjóðið spagettí samkvæmt leiðbeiningum á pakka (al dente).
- Steikið nautahakkið ásamt söxuðum lauk og tveimur hvítlauksrifjum, kryddið eftir smekk og hellið að lokum pastasósunum saman við og blandið vel.
- Hitið ofninn í 180°C.
- Smyrjið eldfast mót að innan með smjöri og raðið hráefnunum í það í eftirfarandi röð: Soðið spaghetti, rjómasósa yfir allt, hakkið fer þá næst yfir og toppað með vel af rifnum osti.
- Bakið í ofni í um 15 mínútur og njótið með góðu hvítlauksbrauði.

Mæli sannarlega með því að þið prófið þennan sniðuga rétt!

Ekki er verra að njóta hans með góðu hvítvíni og besta finnst mér að það er hægt að ganga frá öllu og leggja á borðið þessar 15 mínútur á meðan rétturinn er í ofninum.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































