Volg smákaka með hátíðarís



⌑ Samstarf ⌑
volg kaka með ís

Það fer ansi vel saman að setja góðan ís ofan á volga súkkulaðibitaköku og bera fram sem eftirrétt. Hér getur hver og einn fengið sína köku og síðan skammtað sér ís og súkkulaðisósu að vild.

súkkulaðibitakaka með ís

Volg smákaka með hátíðarís

Uppskrift gefur 7 kökur

  • 1 x Betty Crocker smákökumix
  • 50 g smjör við stofuhita
  • 1 msk. vatn
  • 30 g súkkulaðidropar
  • Hátíðarís frá Emmessís
  • Súkkulaði- núggatsósa (sjá uppskrift að neðan)
  • Karamellukurl
  1. Hitið ofninn í 160°C (blástur).
  2. Blandið Betty Crocker mixi saman við smjör og vatn og hrærið þar til þykkt deig myndast.
  3. Blandið þá súkkulaðidropunum saman við með sleif.
  4. Rúllið kúlu úr kúfaðri matskeið og raðið á bökunarplötu með gott bil á milli.
  5. Bakið í 12-18 mínútur eftir því hversu stökkar þið viljið hafa kökurnar.
  6. Setjið köku á disk og góða ískúlu af hátíðarísnum yfir og því næst súkkulaðisósu og meira karamellukurl.

Súkkulaði- núggat sósa

  • 100 g dökkt súkkulaði
  • 40 g núggat
  • 70 ml rjómi
  1. Setjið allt saman í pott og bræðið saman við meðalháan hita þar til kekkjalaus sósa hefur myndast.
ís fyrir jólin

Hátíðarísinn frá Emmessís er góður einn og sér en enn betri með heitri súkkulaði- og núggatsósu og volgri smáköku.

etirréttur hugmynd

Betty Crocker einfaldar sannarlega lífið og það tekur enga stund að útbúa þennan dásamlega eftirrétt.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun