Hægeldað lambalæri eins og hjá mömmu



⌑ Samstarf ⌑
hvernig á að elda lambalæri

Hér kemur klassískt sunnudagslæri eins og þau gerast best að okkar mati. Sykurbrúnaðar kartöflur, brún sósa, grænar ORA baunir, rauðkál og sulta er allt sem þarf fyrir hinn fullkomna sunnudagsmat! Stundum vill maður ekkert annað en „mömmumat“ og mikilvægt að halda slíkum uppskriftum á lofti fyrir komandi kynslóðir að mínu mati.

Ohhhh þetta er svo gott!

lambalæri og brún sósa

Hægeldað lambalæri eins og hjá mömmu

Fyrir 5-7 manns

Hægeldað lambalæri uppskrift

  • 2,5-3 kg lambalæri
  • Lambakjötskrydd
  • Ólífuolía
  • 1 x laukur
  • 2 gulrætur
  • 500 ml vatn
  1. Hitið ofninn í 100°C.
  2. Skolið og þerrið lærið, berið næst á það ólífuolíu og kryddið vel allan hringinn.
  3. Setjið lærið í steikarpott ásamt lauk, gulrótum og vatni.
  4. Setjið lokið á pottinn og eldið í um 4-5 klukkustundir eða þar til kjarnhiti hefur náð 60-65°C.
  5. Hækkið þá hitann í 220°C, hellið soðinu úr pottinum í gegnum sigti í pott og setjið lærið aftur inn í um 20 mínútur eða þar til það hefur fengið á sig stökka húð.
  6. Leyfið lærinu að hvíla í að minnsta kosti 15 mínútur áður en þið skerið í það.

Brún sósa uppskrift

  • Soðið úr steikarpottinum
  • 300 ml vatn
  • 400 ml rjómi
  • 2 msk. nautakraftur
  • 1 msk. púðursykur
  • Um 6 msk. maizenamjöl
  • Sósulitur
  • Salt og pipar eftir smekk
  1. Þegar soðið er komið í pottinn má hækka hitann og bæta vatni, rjóma, krafti og púðursykri í pottinn, hræra vel.
  2. Þegar suðan kemur upp má hræra maizenamjölinu saman við og lækka hitann.
  3. Litið með sósulit og smakkið sósuna til á lágum hita á meðan annað er undirbúið.

Sykurbrúnaðar kartöflur og rauðkál uppskrift

  • 150 g sykur
  • 50 g smjör
  • 1 kg soðnar kartöflur
  • Um 300 g ORA rauðkál
  1. Setjið sykurinn á pönnu á hæsta hita.
  2. Hristið pönnuna reglulega þegar sykurinn byrjar að bráðna og þegar hann fer að sjóða aðeins, má lækka niður í hitanum og bæta smjörinu á pönnuna.
  3. Blandið saman sykurbráð og smjöri og bætið næst kartöflunum saman við og leyfið að malla við lágan til miðlungs hita í nokkrar mínútur.
  4. Þegar þið takið kartöflurnar af pönnunni má hækka upp í afgangs sykurbráðinni og steikja rauðkálið upp úr henni stutta stund.

Annað meðlæti

  • ORA grænar baunir (1-2 dósir)
  • Rifsberjasulta
mömmumatur eða ömmumatur

Það má að sjálfsögðu sleppa því að sykurbrúna rauðkálið og bera það fram beint úr krukkunni en ég hvet ykkur hins vegar til að prófa ef þið hafið ekki gert það áður!

lambalæri eins og hjá ömmu

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun