Súkkulaði jólatré



⌑ Samstarf ⌑
eftirréttur fyrir jólin

Ég sá þessa hugmynd á Instagram um daginn og gat ekki hætt að hugsa um hana fyrr en ég væri búin að prófa því mér fannst þetta svo sniðug hugmynd!

Þetta er einfalt og gott og klárlega hollari eftirréttur en margir og svo líka bara einstaklega fallegt borðskraut!

jólalegur eftirréttur

Súkkulaði jólatré

  • 300 g dökkt súkkulaði
  • 80 g Til hamingju möndlur
  • 80 g Til hamingju pistasíur
  • 40 g Til hamingju pekanhnetur
  • 40 g Til hamingju trönuber
  • 40 g Til hamingju heslihnetur
  • 40 g Til hamingju lakkrísflögur
  1. Saxið hnetur og möndlur gróft niður og blandið í skál ásamt trönuberjunum.
  2. Bræðið súkkulaði og teiknið 8 hringi á bökunarpappír, minnsti um 3 cm í þvermál og svo stækka um ½-1 cm hvern eftir það.
  3. Smyrjið næst vænu súkkulaðilagi inn í hvern hring, skiljið eftir c.a ½ cm allan hringinn því súkkulaðið flest betur út þegar þið setjið hnetublönduna yfir.
  4. Deifið næst vel af hnetublöndu yfir hvern súkkulaðhring og að lokum lakkrísflögum.
  5. Kælið/frystið þar til storknað og raðið síðan saman með því að setja smá brætt súkkulaði á milli hringja.
  6. Skreytið með því að sigta smá flórsykur yfir allt saman (má sleppa).
súkkulaði með lakkrísflögum

Lakkrísflögurnar setja punktinn yfir I-ið að mínu mati!

súkkulaði jólatré

Það má alveg sleppa því að setja flórsykur yfir allt saman en mér fannst það bara skemmtilega jólalegt!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun