Við ORA höldum áfram með nostalgíu uppskriftir fyrir ykkur og hér kemur hangikjötið alveg eins og amma Guðrún heitin eldaði það alltaf og mamma gerir núna. Margir reka upp stór augu þegar ég tala um eggjahræruna en að mínu mati er hún algjörlega ómissandi með hangikjötinu svo ég mæli með að þið prófið ef þið hafið ekki gert það nú þegar!
Það má sjóða hangikjötið 1-2 dögum áður (jafnvel fyrr) og geyma plastað í kæli þar sem það er borið fram kalt. Með þessu móti er hægt að einfalda eldamennskuna til muna á hátíðardeginum sjálfum.

Hangikjöt með uppstúf og tilheyrandi
Fyrir um 6-8 manns
Hangikjöt eldun
- Um 2 kg hangilæri
- Setjið hangilærið í pott og hellið vatni yfir svo það hylji kjötið.
- Náið suðunni rólega upp og þegar suðan er komin má lækka vel niður í hellunni og leyfa kjötinu að eldast í 50 mínútur (c.a 25 mín á kílóið).
- Slökkvið á hellunni eftir þann tíma en leyfið kjötinu að standa í pottinum í 2-3 klukkustundir eftir eldun.
- Kjötið má ýmist bera fram volgt eða kæla það alveg.
Kartöflur og uppstúfur uppskrift
- 1 kg kartöflur
- 100 g smjör
- 80 g hveiti
- 1 l nýmjólk
- 40 g sykur
- Salt og pipar
- Sjóðið kartöflur og flysjið. Skerið stórar í tvennt.
- Bræðið smjör í potti og hrærið hveiti saman við í smjörbollu.
- Bætið næst mjólkinni varlega saman við og pískið vel allan tímann.
- Hrærið stanslaust í pottinum og þegar jafningurinn er að ná suðu og fer að þykkna má lækka alveg niður í hitanum.
- Setjið sykurinn saman við og smakkið til með salti og pipar.
- Hellið að lokum kartöflunum saman við í pottinn.
Eggjahræran hennar ömmu
- 6 egg
- 6 msk. mjólk
- 1 tsk. salt
- 40 g smjör
- Pískið egg, mjólk og salt saman.
- Bræðið smjörið á pönnu og hellið eggjablöndunni saman við.
- Ýtið eggjunum til og frá á pönnunni og eldið líkt og frekar blauta eggjahræru.
- Gott er að taka pönnuna af hellunni þegar þau eru aðeins hlaupin saman en enn blaut og leyfa þeim að klára að eldast þannig.
Annað meðlæti
- Grænar ORA baunir
- ORA rauðkál
- Laufabrauð

Grænar ORA baunir eru einfaldlega ómissandi með svona mat!


































