Tartalettur með hangikjöti



tartalettur með hangikjöti

Það koma nú venjulega ekki tvær færslur inn sama dag hjá mér en þessi hér er í beinu framhaldi af hangikjötinu góða! Það eru nefnilega oft til afgangar og hér kemur ein snilldar leið til þess að nýta afganga af hangikjöti og uppstúf!

tartalettur uppskrift

Tartalettur með hangikjöti

10 stykki

  • 10 tartalettur
  • 200 g hangikjöt
  • 100 g ORA grænar baunir
  • 100 g soðnar kartöflur
  • 150 g þykkur jafningur/uppstúfur
  • Rifinn ostur
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Notið afgangs sneiðar af hangikjöti og skerið í litla bita.
  3. Skerið kartöflurnar einnig í litla bita og blandið næst öllu saman með sleikju nema ostinum.
  4. Fyllið tartaletturnar með hangikjötsblöndu, setjið vel af rifnum osti yfir og bakið í ofninum í 15-18 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun