Toblerone karamelluís



⌑ Samstarf ⌑
Toblerone ís með karamellu og poppi

Það þekkja flestir klassíska Toblerone ísinn og hef ég gert slíka útfærslu í mörg ár! Karamella gerir hins vegar gott betra og almáttugur þessi blanda var undursamleg!

toblerone og karamelluís

Toblerone karamelluís uppskrift

Ísinn uppskrift

  • 5 egg (aðskilin)
  • 50 g sykur
  • 50 g púðursykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 400 ml þeyttur rjómi
  • 150 g Toblerone (saxað)
  • Karamellusósa (sjá uppskrift að neðan)
  • Werther‘s karamellupopp
  1. Byrjið á því að útbúa karamellusósuna (sjá uppskrift að neðan) og leyfið henni að ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.
  2. Þeytið rjómann og saxið Toblerone, leggið til hliðar.
  3. Stífþeytið eggjahvíturnar og geymið.
  4. Þeytið eggjarauður, sykur og púðursykur saman í nokkrar mínútur þar létt og ljós blanda myndast, bætið þá vanillusykrinum saman við.
  5. Vefjið næst þeytta rjómanum varlega saman við eggjablönduna með sleikju, því næst Toblerone súkkulaðinu og stífþeyttu eggjahvítunum að lokum.
  6. Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi og hellið um 1/3 af ísblöndunni þar í. Dreifið næst úr 1-2 msk. af karamellusósu yfir allt og endurtakið þrisvar sinnum þar til ísblandan er búin og um helmingurinn af karamellusósunni kominn í ísinn. Geymið restina af sósunni til að hita upp þegar bera á ísinn fram.
  7. Frystið ísinn í að minnsta kosti 3 klukkustundir eða nokkra daga (plastið ísinn ef geyma á hann lengur en sólahring í frystinum).
  8. Þegar bera á ísinn fram má setja væna karamellu popphrúgu á miðjuna og setja meira af karamellusósu yfir allt, bera svo restina fram með ísnum fyrir þá sem vilja meira.

Karamellusósa uppskrift

  • 200 g Werther‘s karamellur (mjúkar)
  • 100 ml rjómi
  1. Bræðið saman í potti við meðalhita og pískið þar til kekkjalaust. Leyfið karamellunni að ná stofuhita áður en þið notið hana í ísinn.
karamellusósa og ís

Þessar karamellur eru þær allra mýkstu og bestu sem ég hef smakkað!

Færsla þessi er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun