Rjómasúkkulaðimús



⌑ Samstarf ⌑
einföld súkkulaðimús

Rjómasúkkulaðiunnendur takið eftir! Hér kemur ein sú einfaldasta og ljúffengasta uppskrift af súkkulaðimús þó víða væri leitað!

Mmm…

súkkulaðimús uppskrift

Rjómasúkkulaðimús

Uppskrift dugar í um 6 glös/skálar

Súkkulaðimús uppskrift

  • 300 g Síríus rjómasúkkulaði
  • 500 ml rjómi
  • ¼ tsk. salt
  • 1 tsk. vanilludropar
  1. Saxið súkkulaðið niður.
  2. Hitið 250 ml af rjómanum að suðu og hellið yfir súkkulaðið ásamt saltinu. Pískið saman þar til allt súkkulaðið er bráðið.
  3. Bætið þá restinni af rjómanum sem ekki var hitaður saman við í mjórri bunu og hrærið vel saman ásamt vanilludropunum.
  4. Þegar búið er að píska blönduna vel saman má setja lok á skálina og kæla blönduna í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
  5. Hellið þá kældri blöndunni í hrærivélarskálina og þeytið þar til áferðin minnir á léttþeyttan rjóma.
  6. Skiptið niður í skálar/glös og skreytið.

Toppur og skreyting

  • 250 ml þeyttur rjómi
  • 50 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og sjávarsalti
  • Hindber
  1. Sprautið þeyttum rjóma yfir hverja súkkulaðimús.
  2. Saxið suðusúkkulaðið niður og skreytið með því ásamt hindberjum.
súkkulaðimús í eftirrétt

Síríus rjómasúkkulaðið er nú komið í 300g pakkningar sem er fullkomið fyrir þessa uppskrift!

hvernig á að gera súkkulaðimús
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun