Það má sannarlega gera ítalskan mozzarellahring smá jólalegan í desember og er þetta hinn fullkomni réttur til að njóta í kringum hátíðirnar. Það er mikið um þungan mat og gott að fá sér eitthvað létt inn á milli líkt og þennan fallega mozzarellahring!
Það er komið svo mikið af nýjum fallegum vörum í Húsgagnahöllina og ef þið eigið enn eftir að versla jólagjöf þá finnið þið hana sannarlega þar, hvort sem það er falleg smávara eða sælkeravörur frá Lie Gourmet. Ég er að elska vörurnar frá Light&Living og Jakobsdals!

Mozzarellahringur
- Klettasalat
- Spírur
- 2 x mozzarellakúla
- 2 x tómatur
- Basilíka
- Pestó (grænt)
- Lie Gourmet salt með basil og steinselju
- Lie Gourmet balsamik gljái
- Baguette brauð m.ólífuolíu og hvítlauk
- Ristið ólífuolíubornar baguette sneiðar við 200°C í um 5 mínútur og nuddið með opnu hvítlauksrifi þegar þær koma úr ofninum.
- Raðið salati og spírum fallega í hring á bretti og toppið með niðurskornum mozzarellakúlum, tómatsneiðum, basilíku, salti og balsamikgljáa.
- Njótið mozzarellahringsins með brauði og pestó!

Ohhh þetta er svo mikið gott og þessi standur, bakki og kertastjaki eru svo fallegir hlutir!



































